
Tækinu læst
Viltu koma í veg fyrir að tækið sé notað í leyfisleysi? Veldu öryggiskóða og stilltu tækið
þannig að það læsist sjálfkrafa þegar það er ekki í notkun.
Sérsniðinn öryggiskóði valinn
1 Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Öryggi
>
Aðgangslyklar
>
Breyta öryggisnr.
.
2 Sláðu inn forstillta öryggiskóðann, 12345.
3 Sláðu inn nýjan kóða. Nota skal minnst 5 tölur. Aðeins skal nota tölustafi.
Haltu öryggiskóðanum leyndum og á öruggum stað fjarri tækinu. Ef þú gleymir
öryggiskóðanum og tækið er læst þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú getur þurft
að greiða viðbótargjald og persónulegum gögnum í tækinu kann að verða eytt.
Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia Care þjónustuveri eða söluaðilanum.
Öryggistakkavarinn ræstur
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Símastillingar
>
Öryggistakkavari
>
Virkur
.
Tækið er læst þegar bæði takkar og skjár eru læstir. Nota þarf öryggiskóðann til að taka
tækið úr lás.